Fara beint í efnið

3. júlí 2026

Traust til dómstóla og dómskerfis aukist samkvæmt alþjóðlegri könnun OECD

Traust til dómstóla og dómskerfisins á Íslandi hefur aukist samkvæmt alþjóðlegri könnun OECD sem fór fram á árinu 2025 og birt var í lok júní.

Samkvæmt könnuninni bera 65% svarenda traust til dómstóla og dómskerfisins en árið 2023 mældist traustið 48% og árið 2021 mældist það 53%. Sjá mynd úr frétt forsætisráðuneytisins á vef stjórnarráðsins 30. júní sl.

Skýrslan er aðgengileg á vefsíðu OECD: OECD Survey on Drivers of Trust in Public Institutions 2026 Results