5. október 2010
5. október 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tólf teknir fyrir ölvunarakstur
Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tíu voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Fimm voru teknir á laugardag og sjö á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 21-44 ára og jafnmargar konur á aldrinum 18-62 ára.