23. nóvember 2010
23. nóvember 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tólf teknir fyrir ölvunarakstur
Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, tveir á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-80 ára og fjórar konur, 20-69 ára.