Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. júní 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tólf ökumenn kærðir fyrir hraðakstur

Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 162 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Þá voru allmargir ökumenn kærðir fyrir brot á stöðvunarskyldu, ólöglega lagningu bifreiða sinna, notkun síma án handfrjáls búnaðar og akstur án öryggisbelta. Loks vorur skráningarnþumer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist höfðu ekki verið færðar til skoðunar eða voru ótryggðar.