Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. febrúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tíu teknir fyrir ölvunarakstur

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta voru stöðvaðir á laugardag og tveir á sunnudag. Sjö voru teknir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn á Álftanesi. Þetta voru átta karlar á aldrinum 18-53 ára og tvær konur, 18 og 19 ára. Þrír þessara ökumanna reyndust jafnframt vera próflausir.