Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. október 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tíu teknir fyrir ölvunarakstur

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudag, fimm á laugardag og fjórir á sunnudag. Sex voru teknir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ og Mosfellsbæ. Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-54 ára og tvær konur, 34 og 46 ára. Fjórir karlanna eru á þrítugsaldri, tveir á fimmtugsaldri, einn á sextugsaldri og einn undir tvítugu.