15. maí 2012
15. maí 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tíu teknir fyrir ölvunarakstur
Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fimm á laugardag og fjórir á sunnudag.. Þetta voru níu karlar á aldrinum 17-51 árs og ein kona, 22 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptur ökuleyfi.