Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tíu teknir fyrir ölvunarakstur

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru níu karlar á aldrinum 21-36 ára og ein kona, 23 ára.