7. september 2010
7. september 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tíu teknir fyrir ölvunarakstur
Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fimm á laugardag, þrír á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 18-49 ára og þrjár konur, allar á þrítugsaldri. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.