30. nóvember 2010
30. nóvember 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tíu óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru tíu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, átta á laugardag og einn á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-40 ára og ein kona, 19 ára. Helmingur þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.