Fara beint í efnið

14. apríl 2026

Tími fyrir dekkjaskipti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur ökumenn á bifreiðum búnum nagladekkjum til að huga nú að dekkjaskiptum. Það er hlýtt í veðri og færðin í umdæminu er hin ágætasta og því ekki þörf á nagladekkjum á höfuðborgarsvæðinu.

Á þessum tíma berast embættinu iðulega spurningar um hvenær lögreglan fari að beita sektum vegna nagladekkja, en um það verður upplýst með einhverju fyrirvara eins og jafnan áður. Sektarbókin verður því óhreyfð um sinn, en lögreglan hvetur þá ökumenn sem það á við að fara að huga að dekkjaskiptum og panta sér tíma á dekkjaverkstæði ef því er að skipta. Viðbúið er að annríki verður á dekkjaverkstæðum er líður á mánuðinn og því skynsamlegt að ráðast tímanlega í dekkjaskipti.