24. júní 2024
24. júní 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tilkynningum um alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hefur fjölgað
Embætti ríkislögreglustjóra hefur birt nýja skýrslu um ofbeldi barna, stöðuna og áskoranir því tengdu eins og það birtist í gögnum lögreglu. Í skýrslunni er leitast við að varpa ljósi á ofbeldisbrot barna sem stunda ofbeldis- og áhættuhegðun með neikvæðum afleiðingum á velferð þeirra og þroska. Farið er yfir tölfræðigögn lögreglu sem tengjast ofbeldi ungmenna auk þess sem rýnt er í önnur útgefin gögn og birtingarmyndir á hagnýtingu barna og ungmenna í skipulagðri brotastarfsemi skoðuð.
Flest börn á Íslandi búa við jákvæðar og uppbyggilegar aðstæður og taka virkan þátt í tómstundum, íþróttum og félagsstarfi sem eykur lífsgæði þeirra og framtíðarmöguleika.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað frá árinu 2007
Tilkynningum um alvarlegum ofbeldisbrotum hefur fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri
Tilkynningum um ofbeldisbrot hjá aldurshópnum 13 til 15 ára hefur fjölgað frá 2007
Fjöldi ungmenna sem fremja brot hefur hlutfallslega ekki fjölgað en fleiri fremja ítrekuð ofbeldisbrot
Gögn lögreglu benda til þess að börn og ungmenni séu í félagahóp með hópum og einstaklingum í skipulagðri brotastarfsemi þar sem ólögleg starfsemi fer fram
Skýrsluna í heild sinni má lesa hér.
Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is