Fara beint í efnið

6. júní 2022

Tilkynningar Umsókn um byggðakvóta 2021/2022 (10)

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa skv. ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa.

Fiskistofa logo

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa skv. ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021  um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022 og auglýsingu nr. 645/2022. Auglýst er eftir umsóknum fyrir:

Hvammstanga

Umsóknargátt fyrir byggðakvóta
Eyðublað fyrirstaðfestingu á vinnslusamning

Leiðbeiningar:

Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina  hér að ofan.  Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi.

Staðfestingu á vinnslusamningi skal skila sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um byggðakvóta.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi þar sem við á.

Útgerðir eru beðnar að huga sérstaklega að því að skip verður að hafa gilt veiðileyfi við lok umsóknarfrests.

Umsókn og vinnslusamning er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina. 
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2022