30. júlí 2025
30. júlí 2025
Tilkynning til sjóða og stofnana sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá um skil ársreikninga
Minnt skal á að sjóðum og stofnunum sem starfa á grundvelli laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt sérstakri skipulagsskrá, með síðari breytingum, og ekki stunda atvinnurekstur skv. lögum nr. 33/1999 um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, ber að skila árituðum ársreikningi fyrir árið 2024 til Sýslumannsins á Vestfjörðum í síðasta lagi 31. ágúst 2025.
Skila ber ársreikningi í netfangið sjodir@syslumenn.is.
Vanræki sjóður eða stofnun skyldu sína um skil á ársreikningi innan tilskilins tíma skal viðkomandi sjóður eða stofnun skv. ákvæðum 4. gr. laga nr. 19/1988 sæta álagningu stjórnvaldssektar að fjárhæð kr. 600.000.
Patreksfirði, 29. júlí 2025.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum.