Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. febrúar 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – veður gengið niður að mestu, engin óhöpp eða slys sem vitað er um

Veðrið er nú að mestu gengið niður á Austurlandi. Engin útköll hafa borist björgunarsveitum eða lögreglu þrátt fyrir hríðarbyl í morgun og erfiða færð á vegum. Má þakka það góðum viðbrögðum íbúa hversu vel hefur til tekist, við tilmælum um að vera ekki á ferðinni meðan veðrið gengur yfir. Fyrir það þakkar aðgerðastjórn.

Vegagerðin vinnur nú að því að opna allar helstu leiðir í umdæminu. Þeir er hyggjast leggja á þjóðveginn eru beðnir um að kanna áður á vef Vegagerðar hvaða leiðir eru opnar.