31. október 2020
31. október 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19
Tveir eru nú í einangrun á Austurlandi vegna COVID smits.
Aðgerðastjórn vekur athygli á að nýjar reglur um takmarkanir á skólahaldi í kjölfar hertra sóttvarnaregla er tóku gildi á miðnætti munu kynntar í næstu viku. Eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að fylgjast með upplýsingum á heimasíðu sveitarfélaganna á svæðinu vegna þessa.
Hertar reglur frá miðnætti gilda til 17. nóvember næstkomandi og verður ástandið þá vonandi orðið annað og betra á landinu.
Gerum þetta saman sem fyrr.