Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. október 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

Engin COVID smit eru nú á Austurlandi.

Aðgerðastjórn hvetur til þess sem fyrr að ferðalög milli landsvæða verði einungis farin af brýnni þörf. Fjölgun smita á höfuðborgarsvæðinu er skýr vísbending um að staðan er enn mjög viðkvæm og eins smit er upp hafa komið vegna ferðalaga milli landshluta. Því er biðlað meðal annars til rjúpnaveiðimanna í aðdraganda veiðitímabilsins er hyggja á ferðir til Austurlands að fara hvergi þetta árið heldur halda sig í heimabyggð.

Gætum að okkur og gerum það saman