Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. október 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, -COVID-19

Enginn er með virkt COVID smit á Austurlandi.

Vegna vetrarfrís í skólum meðal annars má búast við að talsverður fjöldi íbúa úr öðrum landshlutum leggi leið sína í sumarhús í fjórðungnum. Aðgerðastjórn hvetur því til aðgæslu bæði heimamanna og gesta. Minnir hún í því sambandi á þær fjórar smitvarnir sem mestu skipta; að fjarlægðarmörk séu haldin, grímur notaðar þar sem þær eiga við, hendur þvegnar reglulega og spritt notað á snertifleti.

Áskoranir í fjórðungnum á COVID tímum hafa verið allskonar og síbreytilegar. Það mun ekki breytast á næstunni. Smitvarnir hafa hinsvegar að mestu verið hinar sömu frá byrjun samanber áréttingu hér að ofan. Höldum þeim vörnum uppi og tryggjum þannig áframhaldandi góða stöðu á Austurlandi.