Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. september 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

Einn er nú í einangrun á Austurlandi vegna smits. Tveir voru áður skráðir í einangrun. Annar þeirra hefur nú færst til í COVID grunninum, til þess landshluta þar sem viðkomandi hefur dvalarstað og hefur haft allan tímann frá greiningu. Fækkun varð því hér um einn við breytta skráningu sem miðar við dvalarstað en ekki lögheimili.

Tíðindalaust er að öðru leyti. Enginn hefur bæst við í sóttkví vegna smits í fjórðungnum.