Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. september 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

Enginn er í einangrun né í sóttkví á Austurlandi.

Aðgerðastjórn í fjórðungnum sér ástæðu til að hrósa þeim fjölmörgu sem hyggja á mannfagnaði í haust, leiksýningar og fleira, sem kappkosta í aðdragandanum að tryggja að öllum smitvarnareglum og leiðbeiningum sé fylgt. Sýnilegt er að íbúar eru meðvitaðir um viðkvæmt ástand, hversu lítið má út af bregða og hversu mikilvægt er að okkur takist í sameiningu að halda núverandi stöðu. Á meðan það er viðhorfið getum við verið bjartsýn á framhaldið.