15. júlí 2020
15. júlí 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19
Um 730 farþegar koma með Norrænu til Seyðisfjarðar á morgun, fimmtudaginn 16. júlí. Sýnataka af farþegum fór fram í Hirtshals í Danmörk áður en skipið hélt þaðan á þriðjudag. Hún er gerð fyrir sóttvarnayfirvöld í Færeyjum en sýnin greind í Danmörku. Niðurstaða liggur því fyrir áður en komið er til hafnar í Færeyjum.
Þetta þýðir meðal annars að allir sem koma hingað til lands með Norrænu frá Færeyjum hafa áður farið í sýnatöku og fengið niðurstöðu.
Breytingar er taka gildi á morgun um að farþegar frá Noregi, Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi auk Færeyja og Grænlands þurfi ekki að sæta sóttkví eða skimun, höfðu því ekki áhrif á sýnatöku þeirra sem nú eru um borð í Norrænu.
Einn þeirra farþega er fór í sýnatöku í Hirtshals reyndist með jákvætt sýni. Óvíst er hvort það er gamalt en viðkomandi ber ekki einkenni smits. Með honum í för voru fimm aðrir og eru allir í einangrun um borð. Frekari sýni munu tekin við komu hingað til lands til að staðfesta niðurstöður. Þeir munu í einangrun hér á landi meðan niðurstöðu er beðið. Aðrir farþegar um borð eru ekki taldir útsettir og munu því ekki verða fyrir áhrifum vegna þessa.
Heimkomusmitgát
Aðgerðastjórn á Austurlandi vekur athygli á að frá 13. júlí tóku gildi reglur fyrir Íslendinga og þá sem búsettir eru hér á landi um svokallaða heimkomusmitgát. Í því felst að sá sem kemur erlendis frá fer í sýnatöku við komu og svo aftur fimm dögum síðar.
Viðkomandi skal í millitíðinni gæta að –
því að fara ekki á mannamót eða í veislur þar sem fleiri en tíu manns eru saman komnir,
vera ekki í samneyti við fólk sem er í aukinni áhættu fyrir alvarleg veikindi/viðkvæma hópa,
tveggja metra reglunni í samskiptum við aðra,
því að heilsa ekki með handabandi og forðast faðmlög og
því að huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum.
Heimilt er, meðan smitgátin varir að –
nota almenningssamgöngur til að komast á áfangastað,
fara í bíltúra,
fara í búðarferðir og
hitta vini og kunningja með ofangreindum takmörkunum.
Þó þessar reglur nái eingöngu til íslenskra ríkisborgara og þeirra sem búsettir eru hér á landi eru fjölskyldur þeirra og aðrir sem hafa víðfemt tengslanet á Íslandi hvattir til að fylgja sömu reglum.