Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

Upp hefur komið Covid-19 smit hjá nemanda á miðstigi í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Í samráði við smitrakningateymið var ákveðið að allir nemendur í 1.-6. bekk skólans fari í sóttkví ásamt nokkrum starfsmönnum skólans. Aðrir nemendur og starfsmenn í grunnskólahluta skólans fara í smitgát. Allt skólahald í 1.-10. bekk Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla fellur niður mánudaginn 15. nóvember, eðlilegt skólahald verður hjá nemendum í leikskóladeildum skólans.

Eitt smit greindist til viðbótar á Vopnafirði en viðkomandi var í sóttkví við greiningu og því ekki frekari rakning í kringum það smit.

Aðgerðastjórn vill brýna fyrir íbúum að bóka sér PCR sýnatöku ef einkenna verður vart og halda sig heima á meðan beðið er eftir niðurstöðum.

Einkenni Covid-19