Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. ágúst 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

Í gær greindist kórónuveirusmit sem hefur tengsl við leikskólann á Seyðisfirði og var töluverður fjöldi settur í sóttkví. Í samráði við leikskólann og smitrakningateymið var börnum, foreldrum og starfsfólki á leikskólanum boðið í skimun í dag. Niðurstöður úr þeirri skimun ættu að liggja fyrir upp úr hádegi á morgun.

Aðgerðastjórn mun senda út aðra tilkynningu þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.