23. apríl 2020
23. apríl 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tilkynning aðgerðastjórnar á Austurlandi, – COVID-19
Af átta smituðum á Austurlandi er einn enn í einangrun. Sex eru í sóttkví.
Þá eru níu einstaklingar í svokallaðri sóttkví B. Þar er um einstaklinga að ræða sem komið hafa erlendis frá til starfa hér á landi og sinna sínum störfum á tilteknum afmörkuðum stöðum eða svæðum án beinna samskipta við aðra.