12. maí 2025
12. maí 2025
Til hamingju með daginn, hjúkrunarfræðingar!
Á hverju ári þann 12. maí á fæðingardegi Florence Nightingale fögnum við Alþjóðlegum degi hjúkrunarfræðinga.

Í ár leggur Alþjóðaráð hjúkrunarfræðnga (ICN) áherslu á heilsu og vellíðan hjúkrunarfræðinga og mikilvægt hlutverk þeirra sem lykilstoð í átt að heilbrigðari samfélögum, öflugra hagkerfi og sterkari ríkisrekstri.
Þema ársins í ár hjá Alþjóðaráði hjúkrunarfræðinga (ICN) „Our Nurses. Our Future. Caring for nurses strengthens economies.“ gæti útlagst sem „Hjúkrunarfræðingar til framtíðar. Vellíðan hjúkrunarfræðinga styrkir hagkerfi."
Við erum gífurlega stolt af þeim 130 hjúkrunarfræðingum sem starfa hjá HSN, sem bera faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu og sinna fjölbreyttum störfum meðal annars á hjúkrunar-, sjúkra- og dvalardeildum, í hjúkrunarmóttöku, í ung- og smábarnavernd, við heilsuvernd grunnskólabarna, heimahjúkrun og á speglunardeildum.
Hjartanlega til hamingju með daginn, hjúkrunarfræðingar – við erum mjög þakklát fyrir ykkar frábæra og mikilvæga starf.