Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þýfi fannst við húsleit

Síðastliðna helgi var verðmætum fyrir u.þ.b. eina milljón króna stolið úr Austurbæjarskóla. Um var að ræða m.a. myndavélar, tölvur og myndvarpa. Þjófnaðurinn uppgötvaðist á sunnudag. Ekki voru ummerki um innbrot og því ekki ólíklegt að þeir aðilar sem komu að þjófnaðinum hafi komist yfir lykla af skólanum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið að málinu og voru nokkrir aðilar yfirheyrðir vegna málsins. Gerðar voru húsleitir í framhaldinu. Í einni þeirra, sem fram fór í morgun, í hús í austurborg Reykjavíkur, fannst þýfið sem stolið hafði verið úr skólanum. Í húsleitinni fundust einning ætluð fíkniefni og auk þess m.a. 8 útieftirlitsmyndavélar og flatskjár, sem að öllum líkindum eru þýfi.