Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. september 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrír teknir fyrir ölvunarakstur

Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Tæplega fimmtug kona var stöðvuð fyrir þessar sakir í Breiðholti í gærmorgun en konan hafði þegar verið svipt ökuleyfi. Um miðjan dag var karl á sextugsaldri handtekinn af sömu ástæðu í Skeifunni en maðurinn hafði lent þar í árekstri. Og í nótt stöðvaði lögreglan för fertugrar konu í Hafnarfirði en hún var sömuleiðs ölvuð við aksturinn.