3. ágúst 2007
3. ágúst 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Þrír teknir fyrir ölvunarakstur
Kona á sextugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur í Kópavogi í gærkvöld og för sautján ára stúlku var stöðvuð fyrir sömu sakir á Suðurlandsbraut í nótt. Tvítugur piltur var einnig tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá var stöðvaður í Álfheimum.
Síðdegis í gær var karl um fertugt tekinn við akstur á Háaleitisbraut en hann var undir áhrifum fíkniefna.