Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. apríl 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrír óku undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan stöðvaði för þriggja ökumanna á höfuðborgarsvæðinu í gær en hinir sömu voru allir undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 30-50 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en annar þeirra var á stolnum bíl.