2. mars 2010
2. mars 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Þrír óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru þrír ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar á þrítugsaldri en í bíl eins þeirra fundust jafnframt fíkniefni. Hinir sömu höfðu allir þegar verið sviptir ökuleyfi.