30. janúar 2015
30. janúar 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Þrír innbrotsþjófar handteknir
Þrír karlmenn hafa orðið uppvísir að því að hafa brotist inn í verslun í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um síðustu helgi og haft á brott með sér fjármuni og vindlinga. Mennirnir brutu rúðu til að komast inn í húsnæðið. Þar brutu þeir upp peningakassa og tóku nokkra tugi þúsunda króna. Einnig stálu þeir nokkrum lengjum af sígarettum og hurfu af vettvangi með þýfið. Við rannsókn lögreglu bárust böndin að mönnunum þremur og telst málið upplýst.