Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrír handteknir í Kópavogi

Tveir karlar og ein kona voru handtekin í húsi í Kópavogi á fimmta tímanum í nótt eftir að lögreglu bárust áreiðanlegar upplýsingar um að þar inni væri maður vopnaður skammbyssu. Talsverður viðbúnaður var vegna málsins og naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Við húsleit var lagt hald á skammbyssu, skotfæri og skothelt vesti. Þremenningarnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.