Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrír hælisleitendur með Norrænu.

Þrír karlmenn, sem komu til Seyðisfjarðar með ferjunni Norrænu í morgun frá Danmörku, hafa óskað eftir hæli á Íslandi. Þeir voru stöðvaðir af tollvörðum og spurðir um skilríki en gátu ekki framvísað neinum gildum ferðaskilríkjum. Tollverðir vísuðu málum þeirra til lögreglunnar. Mennirnir hafa að því er virðist allir dvalið í Svíþjóð og hugsanlega verið í hælismeðferð þar. Þeir verða sendi til Reykjavíkur til áframhaldandi hælismeðferðar.