26. nóvember 2021
26. nóvember 2021
Þriðja græna skrefið
Fiskistofa tekur þátt í verkefninu Græn skref.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5E3PNUdUDvE6e0ONZiKfao/d8b97c887b0c744fe86e19708c722368/3graenskref.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![3 græna skrefið](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5E3PNUdUDvE6e0ONZiKfao/d8b97c887b0c744fe86e19708c722368/3graenskref.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Fiskistofa tekur þátt í verkefninu Græn skref. Fiskistofa er stolt af því að á dögunum var þriðja skrefið stigið á öllum starfstöðvum stofnunarinnar.
Í þriðja skrefinu felst m.a. að Fiskistofa færir grænt bókhald, hugar að umhverfismálum í innkaupum og viðburðahaldi, flokkar úrgang og er með aðgerðir til að minnka sóun. Grænu skrefin eru fimm og stefnum við að því að ljúka þeim fyrir árslok 2021.