Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. janúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrettán teknir fyrir ölvunarakstur

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tíu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fimm á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru ellefu karlar á aldrinum 22-66 ára og tvær konur, 17 og 26 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.