Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. desember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrettán teknir fyrir ölvunarakstur

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi. Níu voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 18-50 ára og ein kona, 18 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.