Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. júlí 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrettán teknir fyrir ölvunarakstur

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Átta voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. Þetta voru tólf karlar og ein kona á fimmtugsaldri.

Lögreglan stöðvaði sömuleiðis för sex annarra ökumanna í Reykjavík um helgina. Fimm þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þetta voru allt karlmenn.