Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. ágúst 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrettán óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru þrettán ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tíu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Kópavogi. Fimm voru teknir á laugardag, sex á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru ellefu karlar á aldrinum 17-32 ára og tvær konur á þrítugsaldri. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.