Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. apríl 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrettán líkamsárásir um helgina

Þrettán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Átta þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags. Líkamsárásirnar voru flestar minniháttar og mestmegnis voru þetta pústrar. Í tveimur tilvikum var bjórflaska notuð sem barefli en slíkt getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. Í einu tilfelli var glasi henti í höfuð gests á öldurhúsi en það getur sömuleiðis verið stórhættulegt. Einn gestur fór heim úr miðborginni með brotið nef að því talið er og óttast var að annar hefði kjálkabrotnað en báðir þessir árásarþolar fengu hnefahögg í andlitið.