26. janúar 2015
26. janúar 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Þrennt undir læknishendur eftir árekstur
Þrennt var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir árekstur tveggja bifreiða í Grindavík um helgina. Atvikið bar að með þeim hætti að bifreið var ekið yfir biðskyldu inn á Ægisgötu með þeim afleiðingum að hún rakst á aðra bifreið sem ekið var eftir Hafnargötu. Ökumaður og tveir farþegar annarrar bifreiðarinnar voru fluttir til skoðunar hjá lækni