Fara beint í efnið

15. maí 2024

Þórkatla kynnir leiguverð fasteigna í Grindavík. Félagið tekur í dag við lyklum að fyrstu eignunum

Fasteignafélagið Þórkatla mun byggja nálgun á leiguverði fyrir íbúðarhúsnæði í Grindavík á markaðsleigu að teknu tilliti til aðstæðna í Grindavík á hverjum tíma. Ákveðið hefur verið að leigan út þetta ár nemi 25% af markaðsleigu á Suðurnesjum.

Grindavik altjonsbætur

Fasteignafélagið Þórkatla mun byggja nálgun á leiguverði fyrir íbúðarhúsnæði í Grindavík á markaðsleigu að teknu tilliti til aðstæðna í Grindavík á hverjum tíma. Ákveðið hefur verið að leigan út þetta ár nemi 25% af markaðsleigu á Suðurnesjum. Leigan mun taka mið af brunabótamati eignanna og verður í kringum 625 kr. á fermetra út þetta ár. Það verður því til dæmis hægt að leigja 100 fermetra hús í Grindavík á 62.500 kr. á mánuði. Auk þess greiðir leigutaki hita og rafmagn.

Félagið hefur ákveðið að fyrst um sinn verði fasteignir eingöngu leigðar til fyrri eigenda þeirra. Félagið mun kynna nánari tilhögun á leigu eignanna á næstunni. Þegar fram líða stundir verður skoðað að leigja út til annarra þær eignir í Grindavík sem seljendur hafa ekki óskað eftir forgangsrétti til.

Kynna fyrirkomulag leigu

Til lengri tíma litið verður einnig horft til markaðsleigu við leigu fasteigna til fyrri eigenda en tekið tillit til sérstakra aðstæðna í bænum á hverjum tíma. Leiguverðið mun einnig taka mið af brunabótarmati eignanna og mánaðarleigan miðast við 0,5% af brunabótamati á hvern fermetra. Þetta þýðir að fyrir hús þar sem brunabótamat á fermetra er 500.000 kr. verður leigan, áður en tekið er tillit til aðstæðna í Grindavík , 2.500 krónur á fermetra.

Þórkatla tekur á móti fyrstu eignunum í dag

Þau tímamót eiga sér stað í dag að Þórkatla tekur við fyrstu eignunum í Grindavík. Fram fara sérstakir skilafundir þar sem fulltrúar félagsins og seljendur fara yfir ástand eigna og gerð er sérstök skilaskýrsla. Seljendur munu fá boðun á skilafundinn í tölvupósti.

Búið að samþykkja 85% umsókna

Fasteignafélagið Þórkatla hefur nú samþykkt kaup á 660 fasteignum í Grindavík að kaupvirði um 52 milljarða króna. Þetta er um 85% þeirra 781 umsókna sem félaginu hafa borist. Félagið hefur þegar samþykkt nær allar umsóknir sem bárust fyrir 16. apríl og ekki eru með frávik sem kalla á sérstaka skoðun. Þá hefur félagið nú boðið 513 aðilum kaupsamning eða 66% allra umsækjenda. Þinglýstir kaupsamningar eru 471 og hefur félagið greitt 22,2 milljarða króna í kaupsamningsgreiðslur og yfirtekið lán hjá 16 lánastofnunum að upphæð 11,4 milljarðar króna.

Ýmsar skýringar eru á töfum í einstaka málum

Nokkuð hefur verið fjallað um kvartanir seljenda sem beðið hafa afgreiðslu sinna mála hjá Þórkötlu. Þar er yfirleitt um frávik að ræða sem valdið hafa því að ekki hefur verið að hægt að klára þau mál á einfaldan hátt. Í sumum tilfellum hafa minniháttar atriði eins og útrunnin rafræn skilríki seljenda tafið málin. Oftar er þó um að ræða flóknari úrvinnsluatriði eins og áhvílandi tryggingarbréf frá einkaaðilum og lánveitendum sem standa utan rammasamkomulags lánveitenda og Þórkötlu. Þá hefur komið upp að veð hvíli enn á eignum vegna uppgreiddra lána sem farist hefur fyrir að aflétta af eigninni.

Þórkatla hvetur umsækjendur sem enn bíða afgreiðslu til að kynna sér áhvílandi lán á sínum eignum og vinna í að aflétta tryggingarbréfum og slíkum lánum sem tafið gætu framkvæmdina.

Nokkur mál kláruð skriflega í þessari viku

Í þeim tilfellum sem ekki hefur verið hægt að klára kaup og þinglýsingu í rafrænu ferli hefur verið gerð gangskör í að vinna þau mál skriflega. Í þessari viku verða kláruð nokkur mál gagnvart dánarbúum og aðilum sem ekki hafa rafræn skilríki. Þá er félagið enn að leggja mat á nokkrar húseignir sem eru á byggingarstigi. Loks hefur verið kallað eftir nánari upplýsingum frá aðilum sem hafa óskað eftir undanþágu frá skilyrði um lögheimili. Einnig stendur nú yfir vinna með Búmönnum og HMS að útfærslu á lausn fyrir búseturéttarhafa í Grindavík.