Fara beint í efnið

12. ágúst 2024

Þórkatla er langt komin með kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík

Fasteignafélagið Þórkatla hefur gengið frá kaupum á 852 fasteignum í Grindavík eða 93% þeirra sem sótt hafa um.

Grindavík

Fasteignafélagið Þórkatla hefur gengið frá kaupum á 852 fasteignum í Grindavík eða 93% þeirra sem sótt hafa um. Afhendingar hafa gengið vel og hefur félagið þegar tekið við um 650 eignum. Unnið er að lokauppgjöri við seljendur og frágangi afsala. Félaginu hafa alls borist 917 umsóknir, auk 18 umsókna frá búseturéttarhöfum.

Heildarfjárfesting félagsins til þessa er rúmir 65 milljarðar króna. Þar ef eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur tæpir 45 ma. kr. og yfirtekin húsnæðislán rúmir 20 ma. kr.

„Það er ánægjulegt að okkur hefur nú þegar tekist að koma rúmlega 850 fjölskyldum í Grindavík til hjálpar í þessum erfiðu aðstæðum. Fram undan er vissulega ákveðin biðstaða, en við vonum að náttúruöflin verði okkur að lokum hliðholl svo huga megi að framtíð og uppbyggingu Grindavíkur fljótlega aftur.“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu.

Hollvinasamningur um afnot af húsum verður í boði þegar aðstæður leyfa

Fasteignafélagið Þórkatla hyggst bjóða fyrrum eigendum húsnæðis í Grindavík upp á bæði leigusamninga og svokallaða hollvinasamninga, en forsenda þeirra er þó að öruggt sé talið að dvelja í Grindavík. Hollvinasamningur mun byggja á samstarfi Þórkötlu við seljendur eignanna um umhirðu, minniháttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Ákvörðun um framkvæmd þessara samninga verður tekin um leið og aðstæður leyfa.