Fara beint í efnið

24. mars 2022

Þjónustukönnun heilsugæslunnar

Þessa dagana stendur yfir könnun á þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur slíkrar könnunarinnar er að skoða hvað vel er gert og hvað má betur fara. Rannsóknarfyrirtækið Maskína sér um könnunina líkt og undangengin ár.

Sjúkratryggingar lógó

Úrtakið fyrir fyrir könnunina er úr hópi þeirra sem sóttu þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu árið 2021, óháð því hvar þeir eru skráðir á heilsugæslustöð.

Hlekk á könnunina er að finna á Réttindagátt - mínar síður á heimasíðu SÍ , hjá þeim/forráðamönnum þeirra sem lent hafa í úrtakinu. Ástæða þess að hlekkur fyrir könnun er sendur í gegnum Réttindagátt SÍ er öryggi vinnslunnar. Þannig geta þeir sem lentu í úrtakinu og hafa fengið netpóst varðandi könnunina verið fullvissir um að ekki sé um að ræða svikapóst (hlekk með vírus). Rétt er að árétta að þátttaka og svörun er með öllu ópersónugreinanleg, jafnvel þótt hlekkur sé sendur í gegnum Réttindagáttina.

Það er von SÍ og heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu að sem flestir svari könnuninni því góð þátttaka gefur réttmætari niðurstöður.