23. október 2010
23. október 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Þjófnaður á bifreiðinni RF-232
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreiðinni RF-232, sem er Toyota Yaris árgerð 2007, ljósgrá. Bifreiðin hvarf frá byggingu 761 við Valhallarbraut að Ásbrú í Reykjanesbæ á tímabilinu 05.-12. október. Bifreiðin tilheyrir CC bílaleigunni.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðina gæti verið að finna eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.