Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. júlí 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2009 sett í dag.

Í dag er þjóðhátíð sett í Vestmannaeyjum í glaðasólskini og veðurblíðu. Mikill fjöldi gesta hefur streymt til Eyja síðustu daga og er það samdóma álit manna að aldrei nokkru sinni hafi fleiri verið mættir til Eyja á fimmtudegi fyrir hátíðina. Í gærkveldi hófst aðdragandi Þjóðhátíðar með svokölluðu Húkkaraballi. Mikill erill var í nótt hjá lögreglu og nokkuð um pústra, en ölvun var mikil í bænum og voru 4 óspektarseggir látnir sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Eitt líkamsárásarmál var kært eftir nóttina en engin alvarlegri mál komu þó upp þrátt fyrir mikinn mannfjölda.