16. mars 2007
16. mars 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Tekinn tvisvar með fíkniefni á 2 dögum
Karlmaður um tvítugt var handtekinn í austurborginni síðdegis í gær. Í fórum hans fannst nokkurt magn af ætluðu maríjúana. Sami maður var handtekinn á öðrum stað í Reykjavík á miðvikudag en þá fundust líka hjá honum fíkniefni.
Tveir aðrir karlmenn voru færðir á lögreglustöð síðdegis í gær en báðir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. Um kvöldmatarleytið var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn í miðborginni en á honum fundust ætluð fíkniefni.