Fara beint í efnið

20. ágúst 2026

Talningarstaðir og aðsetur yfirkjörstjórna kjördæma á kjördag við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026

Yfirkjörstjórnir kjördæma auglýsa hér með talningastaði og aðsetur sín á kjördag. Talning er öllum opin meðan húsrúm leyfir.

Yfirkjörstjórnir kjördæma auglýsa hér með talningastaði og aðsetur sín á kjördag.

Atkvæði verða talin að loknum kjörfundi í Laugardagshöll í Reykjavík, í Kaplakrika í Hafnarfirði, Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, Hjálmakletti í Borgarnesi og í Brekkuskóla á Akureyri. Talning er öllum opin meðan húsrúm leyfir.

Sjá nánari upplýsingar í auglýsingum yfirkjörstjórna kjördæmanna ásamt upplýsingum um aðsetur þeirra á kjördag:

Reykjavíkurkjördæmi norður og suður

Aðsetur yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður á kjördag verður í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að kjörfundi loknum færist aðsetur yfirkjörstjórnanna í Laugardalshöll þar sem talning atkvæða fer fram.

Símanúmer yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæmanna á kjördag er 411-4915.

Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmi suður:  
Tómas Hrafn Sveinsson, Hrafnhildur Kristinsdóttir, Sigurbjörg Ósk Friðleifsdóttir, Sandra Hlíf Ocares, Úlfur Þór Andrason.

Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmi norður: 
Eva B. Helgadóttir, Pétur Steinn Guðmundsson, Ragnhildur Thorlacius, Heimir Örn Herbertsson, Páll Ágúst Ólafsson.

Norðvesturkjördæmi

Aðsetur yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á kjördag verður í Hjálmakletti Menningarhúsi, Borgarbraut 54 í Borgarnesi. Talning atkvæða fer fram á sama stað kl. 22:00.

Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag eru: 855-5331 og 862-4380.

Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis:
Ari Karlsson, Gunnar Svavar Friðriksson, Hafdís Gunnarsdóttir, Jón Pálmi Pálsson og Rebekka Hilmarsdóttir

Norðausturkjördæmi

Aðsetur yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis á kjördag verður í Verkmenntaskólanum, Hringteigi 2 á Akureyri. Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag er 854-1474.

Að loknum kjörfundi kl. 22 kemur yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis saman í Brekkuskóla við Skólastíg á Akureyri, til þess að hefja talningu atkvæða. Sími á talningarstað er 866-1474.

Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis:  
Sigmundur Guðmundsson, Hildur Bettý Kristjánsdóttir, Sunna Axelsdóttir, Kristjana Bergsdóttir, Gestur Jónsson.

Suðurkjördæmi

Aðsetur yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis á kjördag verður í Fjölbrautarskóla Suðurlands, Tryggvagötu 25 á Selfossi. Talning atkvæða fer fram á sama stað frá kl. 22:00.

Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag eru: 664-1890, 898-5373 og 695-5900.

Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis: 
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm, Halldór Rósmundur Guðjónsson, Berglind Hallmarsdóttir, Unnar Steinn Bjarndal, Þórir Haraldsson.

Suðvesturkjördæmi

Aðsetur yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis kjördag verður í Kaplakrika í Hafnarfirði. Talning atkvæða fer fram á sama stað kl. 22:00.

Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag er 845-8040.

Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis:  
Björn Þór Rögnvaldsson, Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, Sigurbjörg Yngvadóttir, Vigdís Häsler, Skúli Sveinsson.