Fara beint í efnið

7. júní 2021

Takmarkanir á myndatökum 14. til 18. júní

Vegna uppfærslu á kortakerfinu verða takmarkanir á myndatökum í vikunni 14. til 18. júní og ekki hægt að gefa út dvalarleyfiskort á þeim tíma.

World map

Unnið er að innleiðingu nýrra dvalarleyfiskorta hjá Útlendingastofnun og er stefnt að því að taka þau í notkun í júlí. Þangað til nýju kortin hafa verið tekin í notkun verður útgáfa dvalarleyfiskorta áfram takmörkuð.

Vegna uppfærslu á kortakerfinu verða takmarkanir á myndatökum í vikunni 14. til 18. júní og ekki hægt að gefa út dvalarleyfiskort á þeim tíma.

Vinsamlegast gerið viðeigandi ráðstafanir og hafið samband sem fyrst ef þið þurfið dvalarleyfiskort til að ferðast á næstunni.