6. ágúst 2025
6. ágúst 2025
Tækniþróunarsjóður auglýsir eftir umsóknum
Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 15. september 2025 kl. 15:00.

Sproti er fyrir fyrirtæki sem eru fimm ára og yngri og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á frumstigi. Hægt er að sækja um þótt fyrirtæki sé óstofnað.
Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja verkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar.
Markaður er veitir styrki til markaðssetningar tengd þróun til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Umsóknarfrestur er 15. september 2025, kl. 15:00 og er sótt um rafrænt í umsóknarkerfi Rannís
Viðvera starfsfólks Tækniþróunarsjóðs:
Starfsfólk Tækniþróunarsjóðs verður með opna viðtalstíma milli 10:00 og 14:30 í Engjarós Grósku á þriðjudögum og fimmtudögum frá 12.08.2025 - 11.09.2025.
Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00-12:00 í síma 515 5800
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins: