Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. janúar 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sýnum tillitssemi

„Eigi má stöðva ökutæki eða leggja því á þeim stað eða þannig að valdið geti hættu eða óþarfa óþægindum fyrir umferðina.” Svo segir m.a. í 27. gr umferðarlaga, en full ástæða er til að rifja þetta upp. Ekki síst í því samhengi að á morgnana er mörgum börnum og ungmennum ekið í skóla. Ökumenn stöðva þá oft á akbraut sem næst inngöngudyrum til að hleypa út farþegum, jafnvel þó hentugt útskot sé skammt frá. Þar sem mikil umferð er á skömmum tíma geta myndast langar raðir bíla með tilheyrandi töfum, líkt og lögreglan hefur fengið ábendingar um. Ökumenn eru beðnir um að hafa framangreint í huga og sýna tillitssemi.